Rafmagnslaust er á eftirtöldum stöðum:
Barðastrandalína er spennulaus sökum ísingar. Íbúar á Barðaströnd eru því án rafmagns.
Loftlína í Tálknafirði er brotin. Jarðstrengur sér langflestum fyrir rafmagni, en nokkur hús eru án rafmagns eða keyra á varaafli.
Rafmagnslaust er í hluta af sveitum Önundarfjarðar.
Rafmagnslaust er í Dýrafirði utan Gemlufalls.
Rafmagnslaust er í vestanverðu Ísafjarðardjúpi.
Rafmagnstruflanir eru í Árneshreppi.
Starfsmenn Orkubúsins fylgjast vel með veðri og færð og verður farið í viðgerðir um leið og gefur.